Hornasumma Nashyrnings
Wednesday, May 31, 2006
Hér ber að kynna til sögunnar systkin. Þau hétu Skunkur og Skinka. Faðir þeirra hét Skunkur eldri en móðir þeirra hét Sláturfélag suðurlands.
Sunday, May 28, 2006
Það var svo einn daginn, að Paprekur sat á bekk og át cesar salat upp úr nestisboxi með mynd af Tomma og Jenna. Heyrði hann fyrir aftan sig: „Sall venur menn“ og var þar Laukur kominn og gramsaði í skólatöskunni sinni.
„Hvað helduru? Ég var að fíflast niðrí geymslu og fann þetta!“ sagði Laukur og rétti Papreki snjáða pappírsörk. Sagði paprekur þá: „Mér finnst þetta nú ekki merkilegur pappír“
„Hvað helduru? Ég var að fíflast niðrí geymslu og fann þetta!“ sagði Laukur og rétti Papreki snjáða pappírsörk. Sagði paprekur þá: „Mér finnst þetta nú ekki merkilegur pappír“
Wednesday, May 24, 2006
Fjölskyldan í Kjötskógi 1. kafli: Vinir
Rauður belgur, með fætur hendur og höfuð, þar sem vaxa þykkir grænir stönglar, gengur inn í skólastofu og sest meðal jafnaldra sinna. Hann er akkúrat á réttum tíma og kennarinn velur honum sessunaut, sem gengur inn broti seinna. Sá er kúlulaga en eins og einhver þyngsl hafi rekið hann saman. Röndóttur.
Þeir sitja í gegnum fyrsta tímann án þess að tala saman en þegar líður að frímínútum segir sá rauði: „Sæll, ég heiti Paprekur“, enda hafði hann lært góða siði hjá móður sinni. „Já sæll. Ég heiti Laukur.“
„Góður.“

Thursday, May 18, 2006
Það var dag einn í Kasmír, að ég settist á stein til að ná öndinni eftir að hafa hlaupið um, leitandi af bómull og hör.
Ég heyrði Zeppelin spila þjóðlagið þegar ég tók upp túnfisksamloku.
Ég veit ekki um ykkur en ég er farinn á Humarhúsið
Ég heyrði Zeppelin spila þjóðlagið þegar ég tók upp túnfisksamloku.
Ég veit ekki um ykkur en ég er farinn á Humarhúsið
Ég finn smjörþef...
...Þegar ég þefa af smjöri.
Og ég finn fjörþef þegar ég þefa af fjöri.
En alldrei finn ég helvítis svifgírinn.
Stoppa á grænu og bíð eftir rauðu.
Og ég finn fjörþef þegar ég þefa af fjöri.
En alldrei finn ég helvítis svifgírinn.
Stoppa á grænu og bíð eftir rauðu.
Wednesday, May 17, 2006
Hugmyndin um að fara í fitusog var fyrst fáránleg. En svo fór ég að spá „eridda ekki bara eins og að fá sér sjeik?“
Monday, May 15, 2006
Svona er lífið
Jæja, Ég fór í smáralindina í dag.
Eða réttara sagt þá hefði ég getað farið í smáralindina í dag.
Í staðinn fór ég á essó, eða hvað þetta heitir með pulsunum.
Fékk mér samloku.
Þetta er allt lygi.
En alla vega. Ef Árni Sam á allar samlokurnar...

Sunday, May 14, 2006
Að súpa ausur með káli
Einhverstaðar er nú til ljóð með þessu nabbni.
Það er hins vegar allveg magnað að taka á einhverju vandamáli á það kröftugan máta að maður losar sig í leiðinni við verkfærið sem til þarf.
Þannig myndi maður t.d. drekka ausuna alla til þess að koma kálinu niður.
bara einn, tveir og...