Hornasumma Nashyrnings

Saturday, June 16, 2012

Úr annars ómerkilegu samtali

...HAHAHA Já nákvæmlega. Þessi helvítis mannanafnanefnd ætti stundum að heita Barnaverndarnefnd. Félagi minn átti að vera skírður Eylífur Þarmur. Pabbi hans misskildi þetta með naflastrenginn og fattaði ekki hvar hann endaði. Sumir eru bara fávitar.

Tuesday, May 05, 2009

Útúrdúr Ímoll

Já, John Goodman... Hann er sígildur.
Hefur alltaf á erfitt með helvítis aukakílóin.

Sunday, May 03, 2009

Farsi og almenn leiðindi (Nashyrningur í upphitun)

Að vera réttur maður á réttum stað. Það er gaman.

Að vera réttur maður á röngum stað eða rangur maður á réttum stað aftur á móti. það virðist hvort tveggja núlla hitt út... Samkvæmt mínum útreikningum þá er réttur maður á röngum stað alls ekki réttur maður. Sömuleiðis getur rangur maður ekki verið á réttum stað og þar af leiðand er réttur staður með röngum manni á sér heldur ekki réttur staður.
1-1=0, eða hvað?


Önnur pæling, nátengt:
Að vera Réttur þýðir að maður muni fljótlega vera étinn.... Eða verða gamall og úldna :S ... Ég var eiginlega ekki búinn að hugsa þetta til enda... Læt vita þegar ég kemst að niðurstöðu með þetta.


Í öðrum óspurðum fréttum:
Ég fór í bíó um daginn
drakk bjór og blý-vó þá maginn
Blindfylli í dó þar aginn
Með hárri raust
Ég hló, eflaust
eftir kvöldsins haust kom svo vetur.
Um morguninn loks vissi betur
En maður gerir eins og getur
og við drykkju ég sí þó er laginn

Einn leirburður var í boði Leirarar anonymous eða LA

Friday, May 01, 2009

Of mikið af því góða

Það árla morguns að ég eltist um heilan áratug
Bilanatíðni bensínbíla yókst ekki baun sagði bifvélavirki bæjarins.
Þar var Þorvaldur þorskabóndi þegar....

[RITSKOÐAÐ]

Áður en það varð of seint ákvað Nashyrningurinn að ljúka leiðinlegustu bloggfærslu heims.

Wednesday, April 29, 2009

Ljóð fyrir fávita

Rósir eru rauðar, Fávitinn þinn!!!

Monday, April 27, 2009

Finnið Fimm Villur

Dvergakast háir mig og Dvergbit. Þetta eru hláturskast og samviskubit í smækkaðri mynd. Það þýðir ekkert að spyrja hvervegna þetta tvennt fer saman, því ég get ekki svarað því með vissu. Það er hins vegar hægt að opna umræðu með einhverri uppástungu. Það skaðar ekki þó hún sé röng ef hún leiðir að lokum til einhverrar niðurstöðu.
T.D.
Ég sá dverg. Ég hló innra með mér þegar ég ímyndaði mér eitthvað bjánalegt... eins og ef viðkomandi kæmist í NBA eða að viðkomandi yrði sá fyrsti út í geim. Ég áttaði mig svo á því að ekki er hægt að útiloka neitt í þessum heimi og að ég væri með fordóma þegar ég setti þetta í kómíska mynd. í kjölfarið fór ég að skamma sjálfan mig í hljóði.

Eða

Ég sá ekki dverg. Ég óskaði þess þó að hafa séð dverg því það myndi mér þykja sniðugt. [þá myndi taka við svipað ferli og í fyrri uppástungunni]. Ég hló innra með mér þegar ég ímyndaði mér eitthvað bjánalegt... eins og ef viðkomandi kæmist í NBA eða að viðkomandi yrði sá fyrsti út í geim. Ég áttaði mig svo á því að ekki er hægt að útiloka neitt í þessum heimi og að ég væri með fordóma þegar ég setti þetta í kómíska mynd. í kjölfarið fór ég að skamma sjálfan mig í hljóði.

En ekki halda að þetta sé eitthvað bundið við NBA eða „út í geim“. Það er t.d. mjög auðvelt að sjá fordóma í dvergum á stultum eða Indiana Dverg eða jafnvel Línu LangDverg.

Wednesday, April 22, 2009

Blásið í Lúðra

Stórfrétt stórfrétt. Það er gengilbeina á blastinu. Blæs í lúðra líkt hún eigi þá.

Annars ætlaði ég nú bara að segja frá því að flest skjól sem fokið hefur í, munu fá í sig fokið aftur áður en yfir líkur. Enda eru líkur á því að yfir ljúki á endanum. GRIPINNN.

Hversu lengi getur maður setið auðum höndum. Auður og Ógildir voru óþekktar persónur ú lord of the rings. En Ógildir hétu 2 persónur sögunnar. Annars vegar álfur í skógi sem rak þar líkamsræktarstöð og hins vegar síamstvíburar sem báru nafnið vegna fordóma og vegna þess að þeir fengu aldrei að vera með.

Það er engu líkt að hafa ekkert af viti.
Enda er ekkert neinu líkt.

Þar fyrir utan er súpermann. Náskyldur Permann sem dó í seinna stríði. Þeir höfðu eldað grátt silfur saman en Permann var látinn smakka fyrst.

Þótt ótrúlegt virðist hef ég aldrei eða hálfdrei eða oft gert það sem flestir aðrir hafa gert.

En þannig fór um sjóferð þá, sem var fyrir vikið saga til næsta bæjar, þar sem hún endaði og dó drottni sínum.

Labels: