Hornasumma Nashyrnings

Tuesday, July 25, 2006

Í bunkanum sem Anal-Banani hafði rétt BanaAnanasi var ekkert merkilegt fyrir utan eina færslu á einu blaði. Anal-Banani hafði þó með flækjum, útúrsnúningum og almennum leiðindum sannfært BanaAnanas um að allt sem í bunkanum stóð væri höfuðatriði. Færslan sagði þeim að ef BanaAnanas fengi ekki peninga strax, væri hann í djúpum <þið vitið hverju>.
„Já og svo vantar okkur meiri pappír“ sagði Anal-Banani.
BanaAnanas gnísti tönnum og marðist af bræði. Hann stökk á frænda sinn og át hann.
„Hmm, ég var kannski soldið fljótur á mér“ sagði BanaAnanas þegar honum var runnin reiðin og gubbaði þá uppúr sér nýrri versjón með sömu persónueiginleika. Frændi BanaAnanasar var eftir það ávallt kallaður Banus.
„Jæja hvað eigum við þá að gera í þessu“ sagði Banus
„Ég er með nokkrar hugmyndir“ sagði BanaAnanas og flissaði líkt og heimsyfirráð væru í nánd.
„Þetta er verkefni fyrir Jóa Skríl og Hlaupagúllas!“

Friday, July 14, 2006

Fjölskyldan í Kjötskógi 2. kafli: Illmenni

BanaAnanas sat við skifborð, með bakið í glugga sem var þeim eiginleikum gæddur að hann þýddi öll veður yfir á þrumur, rok og rigningu.
Bókhaldari BanaAnanasar, og frændi (en þeir vor skildir í annan ávöxt BA) var Anal-banani. Hann þótti með afbrigðum nákvæmur og smásmugulegur. Hann gekk inn þar sem BanaAnanas var að reyna að lesa Vefarann mikla með erfiðleikum, þvi allar ljósaperur herbergisins voru farnar að herma eftir þrumuveðrinu sem skein inn um gluggan.
„Heyrðu frændi, það er smá vesen hérna“ Sagði Anal-banani og rétti BanaAnanasi Þykkan blaðabúnka.
„Úúú, hann er ennþá volgur“ sagði BanaAnanas.