Thursday, November 09, 2006

...Rassismi (innskot í litla sögustund)

Mikið hefur farið fyrir Rassisma á Íslandinu okkar undanfarið. Nasi stakk öðru horninu upp í síns eigin og fór að velta þessu öllu fyrir sér.
Eiginleikar rassa eru nefnilega sjálfs síns öfugmæli. Annars vegar eru þeir notaðir til þess að búa til örsmáa, illa lyktandi útlendinga (allavega í tilviki Nashyrningssins þar sem hann er svona hálf afrískur eitthvað) og hins vegar eru þeir dead sexe.
Það er einnig magnað og frábært, að rass er eitt af fáum líffærum okkar mannanna sem ekki hægt að skipta um. Þið vitið svona rass „transplant“eitthvað.
Það er sennilega bara rassinn og heilinn.
Það er líka ekki hægt að missa rassinn í vinnuslysi eða Nam og þar af leiðandi hefur eingin nokkurn tímann séð rasslausan mann hanga á hlemmi.

0 Comments:

Post a Comment

<< Home